Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 4. febrúar 2012

Heilsársvegur í Árneshrepp á Ströndum – ákvörðun sem þarf að taka og hefja verkið árið 2012.

Frá Norðurfirði.
Frá Norðurfirði.
Fréttabréf frá oddvita Árneshrepps. 

Í dag býr sveitarfélagið við þær aðstæður að eiga að vera eyja  þrjá mánuði á ári, þar sem við búum við G-reglu í snjómokstri. Hluti íbúa sveitarfélagsins býr við algjöra innilokun þessa þrjá mánuði á ári. Hreppsnefnd hefur ítrekað beðið um að hreppurinn verði færður upp í  F -reglu, sem ekki er talið hægt, þar sem vegurinn sé ekki þjónustufær.  Á einfaldri íslensku , það þarf að byggja veginn upp til að hægt sé að þjónusta hann. Því  ætti að vera forgangsverkefni að byrja á að byggja upp erfiða kafla af veginum á fyrirhuguðu framtíðarvegstæði, en núverandi  vegur var ruddur með jarðýtu á árunum 1960-1965.

Nú er okkur alltaf núið því um nasir að við séum svo fá.  En eins og einn góður maður sagði ,,vegurinn er ekki bara fyrir íbúa Árneshrepps heldur alla landsmenn og erlenda gesti líka".

Í sveitarfélaginu Árneshreppi eru um 40 sumarhús í eigu einkaaðila, þessi hús eru flest heilsárshús og stórar fjölskyldur sem standa að þeim. Uppbygging ferðaþjónustu hefur verið mikil, fjárfestingar þar gefa ekki arð þegar ekki er hægt að komast á staðinn. Í Árneshreppi er Norðurfjarðarhöfn og stutt á gjöful fiskimið.

Það er einhvers staðar vitlaust gefið.

Aðgerðir strax!

                                                                                   Oddný S. Þórðardóttir

                                                                                   Oddviti,  Árneshreppi.

#1

Lydur Sörlason, laugardagur 04 febrúar kl: 23:22

Ég er algjörlega sammála þessu bréfi. Aðgerðir strax. K.v. Lýður.

#2

Eysteinn Gunnarsson, sunnudagur 05 febrúar kl: 00:55

Það sem Árneshreppur verður fyrir af vegagerðinni og yfirboðurum hennar heitir tvöföld refsing. Það er alveg óásættanlegt og gengur ekki í dómskerfinu en í pólitík er allt leifilegt eins og vitað er. Fyrsta refsing er að vegurinn hefur ekki fengist lagfærður og þess vegna er hann ekki "þjónustufær" yfir veturinn.

baráttukveðjur
Eysteinn

Skrifaðu athugasemd:


Atburðir

« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Úr myndasafni

  • Litla-Ávík.
  • Frændurnir Gunnar Njálsson og Valgeir Eyjólfsson.
  • Langt komið að steypa plötu.01-10-08.
  • Úr eldhúsi fólkið sem ber fram mat og þjónar til borðs.
Vefumsjón